Íslensk framleiðsla úr plasti í yfir 50 ár

Borgarplast framleiðir fiskiker, fráveituvörur, rotþrær, olíu- og fituskiljur, salt- og sandkistur, heita potta, vegatálma og margt fleira úr plasti.

561-2211Opið virka daga 08:00–16:00Völuteig 31A, Mosfellsbæ

Vöruúrval

Vörur úr polyethylene (PE) og polystyrene (EPS) sem eru að fullu endurvinnanlegar og ætlaðar til að endast í áratugi.

Allar vörur

Sjávarútvegur

Einangruð fiskiker, lok og aukahlutir, plastbretti og línubalar.

Heimili, fyrirtæki og stofnanir

Heitir og kaldir pottar, vegatálmar og salt- og sandkistur.

Fiskiker sem endast

Frumkvöðlar í framleiðslu á fiskikerjum. Hér eru einangruðu kerin okkar teiknuð í réttum hlutföllum, frá því minnsta til þess stærsta.

Finna rétta kerið

Borgarplast er stærsti söluaðili einangraðra fiskikerja á Íslandi og hefur selt fiskiker til allra heimsálfa frá árinu 1986. Árleg framleiðslugeta hverfismótunardeildarinnar samsvarar 75.000 einangruðum kerum.

  • Grunnstærð 100 × 120 cm fellur undir iðnaðarstærð samkvæmt flutningastaðlinum ISO 6780.
  • Kerin eru aðgengileg fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum fjórum hliðum.
  • Hægt er að stafla öllum kerum Borgarplasts, bæði með og án loka.

Hreinsun frárennslis

Um áratugaskeið hefur Borgarplast verið leiðandi framleiðandi á rotþróm, olíuskiljum og fituskiljum sem hreinsa frárennsli frá fyrirtækjum og heimilum. Smelltu á tölurnar til að sjá hvernig kerfin virka.

Tækniupplýsingar
SiturlögnRotþró, þrjú hólf1234
ÍST EN 12566

Frá húsi að siturlögn

  1. Frárennsli frá húsinu rennur í rotþróna.
  2. Rotþróin er þriggja hólfa. Föstu og þyngri efnin falla til botns en léttari efni, t.d. fita og sápur, fljóta á yfirborðinu.
  3. Föstu efnin rotna og verða að seyru sem þarf að fjarlægja reglulega. Útloftunar- og dælurörin eru notuð þegar dælt er upp úr þrónni.
  4. Hreinsað vatnið rennur áfram í siturlögn.

Bestu kaupin: rotþró, þrír útloftunarstútar og siturlagnasett í einum pakka. Þá vantar bara lögnina frá húsi að rotþró.

Skoða rotþrær

Heitir pottar, framleiddir fyrir íslenskar aðstæður

Heitu pottarnir eru 1.250 lítra, fyrir um 4–5 fullorðna, og steyptir úr gegnheilu PE sem er álagssterkt, endingargott og 100% endurvinnanlegt. Engin aukahúð sem kvarnast af við högg.

Heitir pottar Borgarplasts fást hjá Laugin.is.

Saga Borgarplasts

Saga félagsins spannar rúmlega hálfa öld, frá Plastgerð Suðurnesja 1965 og stofnun Borgarplasts í Borgarnesi 1971.

Um okkur
  1. 1965

    Plastgerð Suðurnesja stofnuð. Húsaeinangrun fyrsta framleiðslan.

  2. 1971

    Borgarplast hf. stofnað í Borgarnesi af Guðna Þórðarsyni ásamt samstarfsfélögum.

  3. 1983

    Hverfisteypudeild stofnuð í Kópavogi, upphaf hverfisteyptra lausna fyrir sjávarútveginn.

  4. 1986

    Útflutningur hefst á einangruðum fiskikerjum til Danmerkur.

  5. 1993

    ÍST EN ISO 9001 vottun, fyrst íslenskra iðnfyrirtækja.

  6. 1998

    Útflutningur nær til 40 landa í öllum heimsálfum.

  7. 2002

    Fyrst fyrirtækja í heiminum til að nota hauggas (metan) í stað olíu á framleiðsluvélar.

  8. 2008

    Verksmiðjurnar sameinaðar að Völuteig 31–31A í Mosfellsbæ.

  9. 2010

    CE-merking á rotþróm, olíuskiljum, fituskiljum og einangrunarplötum.

  10. 2019

    EPS framleiðsla sameinuð í 4.700 m² húsnæði í Reykjanesbæ.

Vantar þig tilboð?

Settu vörurnar á tilboðsbeiðni eða hringdu í söludeildina í síma 561-2211.