Borgarplast framleiðir 460 lítra PUR einangruð ker fyrir sjávarútveginn

460 PUR einangrað ker

Einangrað með PUR-frauðiVörunr. 20159
Rúmmál
430 l
Lengd
1.220 mm
Breidd
1.030 mm
Hæð
580 mm
Þyngd
42 kg

460 PUR einangrað ker frá Borgarplast er mest notað um borð í fiskiskipum undir ferskan, ísaðan fisk. 460 PUR kerið er mest notaða ker á Íslandi. Þar sem að dýpt kersins er aðeins 43 cm er lítill þrýstingur á fisknum og skilar það því mjög góðu hráefni. 460 PUR kerið er með tappagöt á öllum fjórum hornum sem tryggir greiðara afrennsli fyrir bráðinn ís. 460 PUR kerið er mikið notað við flutninga á hráefni bæði með bílum og gámum. Þá er 460 kerið notað af öllum fiskmörkuðum á Íslandi. Einangrað lok er fáanlegt á 460 kerið.

460 PUR einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólflyftara frá 2 hliðum og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið á handföngunum og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. 460 kerið er staflanlegt með 660 kerinu með og án loka.

460 kerið frá Borgarplast er framleitt úr polyethylene og einangrað með polyurethane frauði (PUR), sem hefur hátt einangrunargildi og gefur kerinu styrk.

Bjóðum einnig upp á lítillega útlitsgölluð ker á afslætti en þau ker eru ekki til notkunar í matvælaiðnaði.

Hringja 561-2211

Sendu fyrirspurn um vöruna með tilboðsbeiðni eða heyrðu í sölumönnum Borgarplasts.

Stærðir og mál

Utan málInnanmál
Hæð (mm)580430
Breidd (mm)1030960
Lengd (mm)12201160
Þyngd (kg)42
Rúmmál (lítrar)430

Fleira í flokknum fiskiker og aukahlutir