Um Borgarplast

Stofnað í Borgarnesi árið 1971. Í dag starfa um 40 manns hjá fyrirtækinu, eftir verkefnastöðu hverju sinni.

Borgarplast hf. var stofnað í Borgarnesi árið 1971 með uppsetningu EPS einangrunarverksmiðju. Rætur félagsins liggja þó lengra aftur, því árið 2018 sameinaðist það Plastgerð Suðurnesja sem var stofnuð árið 1965.

Framleiðslulína Borgarplasts samanstendur af vörum úr polystyrene (EPS) og polyethylene (PE), að mestu til nota í matvæla- og byggingariðnaði. EPS og PE eru að fullu endurvinnanleg, og þar sem félagið framleiðir að mestu vörur sem seldar eru öðrum fyrirtækjum og ætlað er að endast í áratugi er ekki um að ræða hefðbundna neytendaplastvöru sem erfitt er að koma til endurvinnslu.

Borgarplast er stærsti söluaðili einangraðra fiskikerja á Íslandi og umfangsmikið útflutningsfyrirtæki. Félagið hefur selt fiskiker til allra heimsálfa frá árinu 1986 og á stóran hóp erlendra viðskiptavina sem hafa fylgt því í áraraðir.

Höfuðstöðvar Borgarplasts

Saga fyrirtækisins

Saga félagsins spannar rúmlega hálfa öld, frá stofnun Plastgerðar Suðurnesja árið 1965.

  1. 1965Plastgerð Suðurnesja stofnuð. Húsaeinangrun fyrsta framleiðsla félagsins.
  2. 1969Plastgerð Suðurnesja hefur framleiðslu á EPS frauðkössum fyrir útflutning á fisk.
  3. 1971Borgarplast hf. stofnað í Borgarnesi af Guðna Þórðarsyni ásamt samstarfsfélögum.
  4. 1983Hverfisteypudeild Borgarplast hf. stofnuð í Kópavogi. Upphafið að frumkvöðlastarfi Íslendinga í hverfissteyptum lausnum fyrir sjávarútveginn.
  5. 1986Útflutningur á framleiðsluvörum Borgarplasts hefst á einangruðum fiskikerjum til Danmerkur.
  6. 1989Vöruþróun: Annað hverfisteypufyrirtækið í heiminum til að nota þanið PE sem einangrun í endurvinnanleg ker. Eykur styrk og burðargetu keranna verulega.
  7. 1992Skúli Magnússon kaupir Plastgerð Suðurnesja og endurvekur framleiðslu á EPS frauðkössum undir ferskan fisk í verksmiðju félagsins við Bolafót.
  8. 1993ÍST EN ISO 9001 vottun á Seltjarnarnesi, fyrst íslenskra iðnfyrirtækja, annað hverfismótunarfyrirtækja í heiminum.
  9. 1994Verksmiðjan í Borgarnesi vottuð samkvæmt ÍST EN ISO 9001.
  10. 1996Plastgerð Suðurnesja flytur verksmiðju sína frá Bolafæti í Njarðvík á Framnesveg í Keflavík.
  11. 1998Útflutningur náði til 40 landa í öllum heimsálfum.
  12. 1999Hverfisteypudeildin á Seltjarnarnesi hlýtur ÍST EN ISO 14001 vottun, fyrst iðnfyrirtækja í eigu Íslendinga. Borgarplast setur á markað Kenniker og hlýtur viðurkenningu fyrir áhugaverðustu nýjungina á Íslensku sjávarútvegssýningunni.
  13. 2000Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, veitt Borgarplasti fyrir árið 1999.
  14. 2002Fyrst fyrirtækja í heiminum til að nota endurunnið hauggas (metan) í stað olíu sem orkugjafa á framleiðsluvélar í verksmiðjunni á Seltjarnarnesi.
  15. 2008Í lok ársins flytur verksmiðjan frá Seltjarnarnesi að Völuteigi 31–31A í Mosfellsbæ. Fyrirtækið er þá sameinað á einum stað.
  16. 2010Borgarplast fær leyfi til að CE merkja fjóra vöruflokka fyrir byggingariðnaðinn eftir strangar prófanir: rotþrær, olíuskiljur, fituskiljur og einangrunarplötur úr frauðplasti.
  17. 2018Plastgerð Suðurnesja og Borgarplast hf. sameinuð undir nafni Borgarplast hf.
  18. 2019EPS framleiðsla Borgarplast hf. flutt og sameinuð í endurbættu 4.700 fermetra húsnæði á Grænásbraut í Reykjanesbæ.

Starfsfólk

Skiptiborð: 561-2211

Skrifstofa

Hilmar Arnfjörð Sigurðsson

Framkvæmdastjóri
hilmar@borgarplast.isSími 561-2211Farsími 771-2424

Eva Hrund Harðardóttir

Bókhald
eva@borgarplast.isSími 561-2214

Sala

Brynjar Guðmundsson

Sölustjóri og markaðsmál
brynjar@borgarplast.isSími 561-2254Farsími 848-3878

Marcelo Audibert

Ker og byggingariðnaður
maa@borgarplast.isSími 561-2253Farsími 896-0656

Framleiðsla

Stanislavs Gordobudskis

Verksmiðjustjóri
lager@borgarplast.isSími 561-2211Farsími 770-7530