Heitir pottar
Framleiddir á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. 1.250 lítrar, fyrir um 4–5 fullorðna.
Heitir pottar Borgarplasts fást hjá Laugin.is.
Gegnheilt PE án aukahúðar
Pottarnir eru framleiddir úr polyethylene (PE) og eru bæði álagssterkir og endingargóðir. Ekki kvarnast ytri húð af skelinni við högg frá þungum hlutum þar sem engin aukahúð er á henni, auðvelt er að þrífa skelina og hún þolir sólarálag vel.
Þar sem potturinn er úr gegnheilu PE án sérstakrar húðunar er auðvelt að sérútbúa hann með stútum, ljósum og öðrum aukahlutum án þess að eiga á hættu að breytingar skemmi skelina. Hitaveituskelin er 100% endurvinnanleg.




Lok á pottana
Lokin eru byggð upp af 30 kg/m³ polystyrene-kjarna með ál-skúffu sem styrkingu við innri brún. Það gefur lokinu mikla burðargetu, sem getur reynst nauðsynlegt ef snjór safnast á það.




Sendu okkur fyrirspurn
Eða hafðu samband við söludeild í síma 561-2211. Opið kl. 8:00–16:00 alla virka daga.



