Borgarplast framleiðir 610 lítra PE einangrun ker fyrir sjávarútveginn

610 PE einangrað ker

Einangrað með þöndu PEVörunr. 20290
Rúmmál
610 l
Lengd
1.200 mm
Breidd
1.000 mm
Hæð
760 mm
Þyngd
60 kg

610 PE einangrað ker frá Borgarplast er fjölhæft ker með margþætt notkunarsvið og er Það sérstaklega vinsælt hjá kjötvinnslum og sláturhúsum. Grunnstærð kersins er 100 x 120 cm og fellur þar með undir svokallaða iðnaðarstærð samkvæmt alþjóðlega flutningastaðlinum ISO 6780.

610 PE einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Kerið staflast með Dolav kerinu.

610 PE einangraða kerið frá Borgarplast er bæði framleitt úr og einangrað með polyethylene (PE) og er því endurvinnanlegt. PE einangruð ker hafa minna einangrunargildi heldur en PUR einangruð ker, en þau eru burðarmeiri og sterkari.

Hringja 561-2211

Sendu fyrirspurn um vöruna með tilboðsbeiðni eða heyrðu í sölumönnum Borgarplasts.

Stærðir og mál

Utan málInnanmál
Hæð (mm)760580
Breidd (mm)1000940
Lengd (mm)12001140
Þyngd (kg)60
Rúmmál (lítrar)610

Fleira í flokknum fiskiker og aukahlutir