Borgarplast framleiðir rotþrær með stútum

Rotþró 2300 L + útloftunarstútar+situlagnasett Bestu kaupin

PakkatilboðVörunr. 45322/90610/93040
Rúmmál
2.300 l
Lengd
3.370 mm
Þvermál
1.000 mm
Þyngd
130 kg

Rotþrær Borgarplasts eru þriggja hólfa og framleiddar úr Polyethylene (PE). Rotþrær Borgarplasts uppfylla kröfur staðalsins ÍST EN 12566. Hlutverk rotþróa er að hreinsa frárennslisvatn með því að skilja mengunarefni frá vatninu. Föstu og þyngri efnin falla til botns, en léttari efnin fljóta á yfirborðinu, t.d. fita og sápur. Föstu efnin rotna og verða að seyru sem þarf að fjarlægja reglulega. Lengri rotþró er, að öllu jöfnu, betri en stutt, vegna þess að þar fá föstu efnin lengri tíma til að skilja sig frá vatninu og það hreinsast betur.

Pakki inniheldur það sem þarf frá rotþró og áfram en þá vantar bara frá húsi að rotþró:

Rotþróin sjálf – 2.300 lítra tankur

3 x útloftunarstútar

Siturlagnasett

Hringja 561-2211

Sendu fyrirspurn um vöruna með tilboðsbeiðni eða heyrðu í sölumönnum Borgarplasts.

Stærðir og mál

Rúmmál (lítrar)Þvermál (mm)Lengd (mm)Þyngd (kg)
2.3001.0003.370130

Tækniupplýsingar

Fleira í flokknum rotþrær